Vatnsveitur fyrir lögbýli

Matvælastofnun hefur opnað fyrir umsóknir um styrki vegna vatnsveita á lögbýlum í samræmi við reglugerð um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga til vatnsveitna á lögbýlum.

Umsóknum um stuðning skal skilað inn rafrænt á vef Bændasamtaka Íslands eigi síðar en 29. febrúar 2020.
Ath. Umsóknarfrestur verður ekki framlengdur.

Fylgigögn sem skila þarf með umsókn eru:

1.Mat Búnaðarsambands á þörf býlis fyrir framkvæmd
2.Kostnaðar- og framkvæmdaráætlun
3.Sé um byggingu að ræða skulu fylgja teikningar
4.Umsögn viðkomandi sveitastjórnar um að skilyrði 1. mgr. 1. gr. ofangreindrar reglugerðar séu uppfyllt, þ.e. að hagkvæmara sé að mati sveitastjórnar að leggja vatnsveitu að einstökum bæjum, sbr. 2. mgr. 1. gr. laga um vatnsveitur sveitafélaga

Stuðningur fyrir hverja framkvæmd getur að hámarki numið 44% af stofnkostnaði við vatnsveitu til heimilis- og búsþarfa.

DEILA