Umhverfisráðherra úthlutar 117 m.kr. í styrki

Umhverfisráðherra úthlutaði í gær 67.680.000 kr til verkefna á málefnasviði ráðuneytisins. Alls var úthlutað styrkjum til 43 verkefna. Þá úthlutað hann einnig 39 m.kr. til reksturs félagasamtaka sem starfa á málasviði ráðuneytisins. Í ár námu styrkirnir 39 milljónum króna sem er aukning um tæplega helming frá fyrra ári.

Landvernd 30.7 m.kr.

Samtals var úthlutað 116.680.000 króna. Landvernd fékk styrk til fimm verkefna  samtals 20.450.000 kr og að auki 10.260.000 kr til reksturs. Alls nema styrkir til Landverndar 30.710.000 kr.

Ein félagasamtök á Vestfjörðum fengu styrk til reksturs. Það eru samtökin Rjúkandi í Árneshreppi sem fá 300.000 kr.

Náttúrurverndarsamtök Íslands, sem mjög hafa beitt sér geg laxeldi í sjó á Vestfjörðum með kærum til úrskurðarnefndar um auðlinda- og úrskurðarmál og með því að stefna ríkisstofnunum og fiskeldisfyrirtækjum fyrir dómstóla, fá þrjá styrki að upphæð 1.750.000 kr. og rekstrarstyrk 5.630.000 kr. Samtals fá Náttúruverndarsamtök Íslands 7,4 milljónir króna í þessari úthlutun.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra segir að verkefnin séu af ýmsum toga og snúist m.a. um vistvænar samgöngur, plastmengun, fatasóun, fuglalíf, votlendi, landgræðslu og landbætur svo fátt eitt sé nefnt. Eins eru styrkt málþing og fundir um ólík umhverfismál, s.s. hálendisþjóðgarð, veiðikort og landupplýsingamál. Umhverfisfræðsla er einnig áberandi meðal verkefna og er hún sett fram í ólíku formi, s.s. á vefnum, í formi fyrirlestra, gefnar eru út bækur, myndbönd og sjónvarpsþættir auk námskeiða. Markhóparnir eru allt frá framhaldsskólanemum til eldri borgara. Þá fá ýmis félagasamtök á sviði umhverfismála ferðastyrki til að auðvelda þeim þátttöku í alþjóðlegu samstarfi.

Eftirtalin verkefni hlutu styrk að þessu sinni:

Styrkhafi Heiti verkefnis Styrkveiting Árafjöldi
Ásdís Ósk Jóelsdóttir Neysla, nýting og nýsköpun 1.500.000
Blái herinn Plasthreinasta landhelgi í heimi 2.000.000
Blái herinn Ráðstefna Lets do it world í Tallinn Eistlandi 100.000
Eldvötn Afmælismálþing Eldvatna í tilefni 10 ára starfsafmælis 500.000
Ferðafélag Fljótsdalshéraðs Ævintýra- og náttúruferðir fjölskyldunnar 600.000
Ferðafélag Íslands Umhverfismerkingar fyrir göngufólk 3.000.000 3 ár
Ferðaklúbburinn 4×4 Landbætur og aukið öryggi ferðamanna á hálendi Íslands 650.000
Fuglaverndarfélag Íslands Fuglafriðland í Flóa 610.000
Fuglaverndarfélag Íslands Fjáröflunarfundur BirdLife 150.000
Fuglaverndarfélag Íslands Evrópufundur BirdLife 200.000
Garðyrkjufélag Íslands Aukin þátttaka almennings í garðrækt, umhverfisvernd og endurvinnslu 1.500.000
Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs LAND-NÁM; uppgræðsluverkefni GFF með skólaæskunni 6.000.000 3 ár
Grænni byggð Grænni rekstur fjölbýlishúsa – kynningar fyrir húsfélög 500.000
Heimir Freyr Hlöðversson „Fuglalíf“ Heimildarmynd um Jóhann Óla Hilmarsson 1.500.000
Hið íslenska náttúrufræðifélag Efni Náttúrufræðingsins gert aðgengilegt á vef 1.000.000
Hjólafærni á Íslandi Hjóla- og gönguvika í sveitarfélagi; þróunarverkefni 2020 1.000.000
Hjólafærni á Íslandi Bíllausi dagurinn sunnudaginn  20. september 2020 2.000.000
Kirkjubæjarstofa Vörður – Fornar ferðaleiðir í Skaftárhreppi, 2. áfangi 1.000.000
Kvenfélagasamband Íslands Norrænt þing Kvenfélagasambanda NKF 500.000
Kvenfélagasamband Íslands Vitundarvakning um fatasóun 1.500.000
Landssamband eldri borgara Umbúðalausir eldri borgarar – myndbönd um umhverfismál ætluð eldri borgurum 3.000.000
Landvernd Loftslagsvernd í verki 12.000.000 3 ár
Landvernd Náttúruvernd í Hálendisþjóðgarði – fundaröð 1.000.000
Landvernd Ferð á heimsþing IUCN 450.000
Landvernd Græðum Ísland -CARE – landgræðsluverkefni 2.000.000
Landvernd Vistheimt með skólum 5.000.000 2 ár
LISA samtök Erlent samstarf – þátttaka í fundum 250.000
LISA samtök Upplýsingagátt um landupplýsingar, aðgengi að fræðsluefni um landupplýsingar 320.000
LISA samtök Kynning á skipulagi og aðgerðum á sviði landupplýsinga á Norðurlöndum 500.000
Náttúruverndarsamtök Austurlands Engin veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur – afmælissýning 1.000.000
Náttúruverndarsamtök Íslands Alþjóðl. samningur um verndun líffræðilegs fjölbreytileika sjávar – ferðastyrkur 300.000
Náttúruverndarsamtök Íslands Ferð vegna 26. fundar aðildarríkja Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna 450.000
Plastlaus september Plastlaus september 4.000.000
Sigrún Helgadóttir Flokkun og skráning ljósmynda Sigurðar Þórarinssonar jarðfræðings 4.500.000 2 ár
Sjónfilm ehf Í ríki Vatnajökuls – 10 sjónvarpsþættir um jökla og loftslagsmál 2.000.000
Skotveiðifélag Íslands Ráðstefna vegna 25 ára afmælis veiðikortakerfisins 750.000
Skotveiðifélag Íslands Útfösun á plasti í forhlöðum haglaskota 500.000
Skógræktarfélag Akraness Trjárækt og stígar í votlendi 400.000
Skógræktarfélag Borgarfjarðar Loftslagsskógar 500.000
Skógræktarfélag Íslands Opinn skógur í Álfholtsskógi 500.000
Skógræktarfélag Íslands Fundur European Forest Network á Íslandi 800.000
Ungir umhverfissinnar Framhaldsskólakynningar 650.000
Ungir umhverfissinnar Loftslagsverkfall – Fridays for Future Ísland 1.000.000
Samtals 67.680.000

Tæpar 40 milljónir til reksturs félagasamtaka

Þá hefur ráðherra úthlutað styrkjum til reksturs félagasamtaka sem starfa á málasviði ráðuneytisins. Í ár námu styrkirnir 39 milljónum króna sem er aukning um tæplega helming frá fyrra ári.

Eftirtalin félagasamtök hlutu rekstrarstyrk á árinu 2020:

Styrkhafi Styrkfjárhæð
Blái herinn 1.200.000
Eldvötn 790.000
Ferðaklúbburinn 4×4 430.000
Fuglaathugunarstöð Suðausturlands 400.000
Fuglaverndunarfélag Íslands 3.390.000
Garðyrkjufélag Íslands 1.330.000
Gróður fyrir fólk í landnámi Ingólfs 1.030.000
Grænni byggð 300.000
Hið íslenska náttúrufræðifélag 1.200.000
Landssamtök hjólreiðamanna 500.000
Landvernd 10.260.000
LÍSA samtök 300.000
Náttúruverndarsamtök Austurlands 560.000
Náttúruverndarsamtök Íslands 5.630.000
Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands 300.000
Rjúkandi 300.000
SAMÚT, samtök útivistarfélaga 1.020.000
Sjálfboðaliðasamtök um náttúruvernd 140.000
Skotveiðifélag Íslands 890.000
Skógræktarfélag Akraness 300.000
Skógræktarfélag Borgarfjarðar 430.000
Skógræktarfélag Íslands 7.500.000
SUNN – Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi 300.000
Ungir umhverfissinnar 500.000
Samtals  39.000.000
DEILA