Snjóflóðavörnum í þéttbýli ljúki á næstu 10 árum

Varnargarðarnir á Flateyri. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Uppbyggingu ofanflóðavarna verður flýtt og á þeim að verða lokið árið 2030 skv. tillögum átakshóps ríkisstjórnarinnar um úrbætur í innviðum sem ríkisstjórnin kynnti í gær. Þetta hefur í för með sér að uppbyggingu ofanflóðamannvirkja á hættusvæðum í byggð verður lokið um 25 árum fyrr en í stefndi að óbreyttu.

Hópurinn var skipaður í kjölfar fárviðrisins sem gekk yfir landið í desember sl. sem hafði víðtæk áhrif á ýmsa innviði samfélagsins, s.s. orku- og fjarskiptakerfi. Þá urðu snjóflóð sem féllu á Flateyri og í Súgandafirði í óviðri þann 14. janúar sl. til þess að ákveðið var að taka framvindu framkvæmda við ofanflóðavarnir einnig til endurskoðunar.

„Það er forgangsmál að tryggja öryggi fólks, ekki síst þeirra sem reglulega upplifa hættuástand af völdum mögulegra snjóflóða heima hjá sér. Ég er auðvitað mjög ánægður með þessa niðurstöðu,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.

Samkvæmt tillögum átakshópsins verður framkvæmdum vegna ofanflóðavarna og flutnings- og dreifikerfi raforku flýtt á næstu árum fyrir 27 milljarða króna, þar af er aukning til ofanflóðavarna um 15 milljarða.

Hér koma tillögur hópsins varðandi ofanflóðavarnir á Vestfjörðum.

Varnir Patreksfirði – Urðir, Hólar og Mýrar.

Áætlaður framkvæmdartími : 2020-2023.

Varnir Patreksfirði – Urðir, Hólar og Mýrar.

Varnir Patreksfirði Hnífsdal og Flateyri.

Áætlaður framkvæmdartími : 2021-2025.

Ljúka: Patreksfjörður: Stekkagil og Sigtún – Varnargarðar
Hefja: Hnífsdalur: Sunnanverður – Varnargarðar
Þá liggur fyrir að ráðast þarf í verkefni á Flateyri innan fárra ára en umfang þess liggur ekki
fyrir.

Varnir á ýmsum stöðum á Vestfjörðum: Patreksfirði, Tálknafirði, Bíldudal og Hnífsdal.

Áætlaður framkvæmdartími : 2026-2030.

Ljúka: Patreksfjörður: Stekkagil – Upptakastoðvirki
Ljúka: Tálknafjörður: Geitárhorn
Ljúka: Bíldudalur: Gilsbakkagil og Milligil
Ljúka: Hnífsdalur: Sunnaverður – Varnargarðar
Ljúka: Hnífsdalur: Sunnaverður – Upptakastoðvirki
Ljúka: Patreksfjörður – Brellur ofan Urða, Hóla og Mýra – Snjógrindur.

Fyrirvari er settur um forgangsröðun og tímasetningar. Ákvörðun er í höndum
Ofanflóðanefndar.

DEILA