Nýjung í Tálknafjarðarskóla

Í Tálknafjarðarskóla hefur nú verið tekið upp á þeirri nýjung að bjóða uppá starfsnám á unglingastigi á vorönn.
Starfsnámið fellur undir valgreinar en nemendur hafa til þess tvær klst á hverjum miðvikudegi út vorönn í skipulagt starfsnám.

Hugmyndin kviknaði eftir góðan og innihaldsríkan samráðsfund sem skólastjóri kallaði til undir heitinu Óskaskólinn okkar.

Á þeim fundi var kallað eftir hugmyndum bæjarbúa Tálknafjarðar um skólalóðina, sérstök verkefni og tengingu við atvinnulífið. Í kjölfar fundarins leitaði skólastjóri til fyrirtækja á Tálknafirði um hvort það væri áhugi og vilji til þess að taka við starfsnámsnemum frá grunnskólanum á vorönn 2020.

Níu fyrirtæki urðu við þeirri beiðni og voru spennt að taka við starfsnámsnemunum, þau fyrirtæki sem urðu við beiðni okkar voru TV-Verk, Hópið, Allt í járnum, Leikskóladeild Tálknafjarðarskóla, Tungusilungur, Sjótækni, Íþróttamiðstöð Tálknafjarðar, Bæjarvík og Hjá Jóhönnu.

Markmiðið með þessu er að nemendur fái að kynnast hinum ýmsu atvinnugreinum sem eru með starfsemi á Tálknafirði og og geti þannig betur metið hvort þau hafi áhuga á að mennta sig frekar á því sviði.

Nemendur völdu sex fyrirtæki sem þau höfðu áhuga á að kynnast nánar og eru nú búin með fyrstu vikurnar á vettvangi en þau fá þrjár vikur hjá hverju fyrirtæki sem þau völdu. Allir nemendur fóru mjög spenntir á vettvang og hlakka til komandi vikna.

DEILA