Lýðheilsusjóður úthlutar 90 milljónum til 144 verkefna

Frá afhendingu Lýðheilsustyrkja 2020

Meginmarkmið Lýðheilsusjóðs er að stuðla að heilsueflingu og forvörnum ásamt því að styrkja lýðheilsustarf í samræmi við markmið laga um landlækni og lýðheilsu.
Úthlutað hefur verið úr sjóðnum frá árinu 2012 en undanfari hans var Forvarnasjóður sem settur var á fót árið 1995 og starfræktur þar til nýr sjóður; lýðheilsusjóður varð til við sameiningu Lýðheilsustöðvar og Embættis landlæknis árið 2011.

Ýmis þekkt verkefni sem hvetja almenning til hreyfingar má nefna sem dæmi um verkefni sem hlutu styrk að þessu sinni. Þar má t.d. nefna Lífshlaupið, Hjólað í vinnuna, Kvennahlaupið sem haldið er á yfir 80 stöðum um allt land og á yfir tíu stöðum erlendis, Göngum í skólann, Hjólum í skólann o.fl. Af öðrum verkefnum má nefna greiningu á rafrettunotkun ungs fólks á Íslandi sem miðar að því að kortleggja rafrettunotkun ungs fólks í efstu bekkjum grunnskóla til að auka skilning á rafrettunotkun ungmenna og áhrifaþáttum hennar í víðum skilningi. Fjöldi sveitarfélaga og sambönd á þeirra vegum hlutu styrki til ýmisskonar lýðheilsuverkefna, t.d. Fljótsdalshérað fyrir verkefnið Gengið til heilsu sem er göngu- og hreyfihópur sem lýtur faglegri leiðsögn og Héraðssamband Þingeyinga sem hlaut styrk fyrir verkefnið Æfum alla ævi sem miðar að því að efla heilsu og vellíðan fólks á sambandssvæði HSÞ með bættu starfi í aðildarfélögum sambandsins, aukinni reglulegri hreyfingu og eflingu sjálfboðaliða.

Heilbrigðisráðherra úthlutar styrkjum að fengnum tillögum stjórnar lýðheilsusjóðs sem metur umsóknir út frá því hvernig þær falla að hlutverki sjóðsins. Áður en úthlutað varhöfðu fagráð embættis landlæknis lagt mat á allar umsóknir sem bárust.

Alls bárust 247 umsóknir en úthlutað var til 144 verkefna og voru styrkirnir frá 125.000 upp í þrjár milljónir króna.

Í stjórn lýðheilsusjóðs sitja Kristín Heimisdóttir formaður, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir frá Embætti landlæknis og Thor Aspelund hjá heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands.

DEILA