Kortin hans Smára

Ómar Smári Kristinsson, bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar, verður með sýnishorn af vestfirskum kortum í Safnahúsinu á Ísafirði.

Áhersla verður á kortavinnu Smára á norðanverðum Vestfjörðum og verða sýnishorn úr ferli nokkurra verka, frá fyrstu skissum til prentaðrar afurðar.

Auk þess verða yfirlitskort af kortum og skiltum Smára um landið og að auki verða sýndar nokkrar korta-hreyfimyndir á skjá.

Sýningin opnar laugardaginn 7. mars kl. 14 og eru allir velkomnir.

Eftir það verður sýningin opin á opnunartíma Safnahússins, þ.e. kl. 12-18 virka daga og 13-16 laugardaga. Stendur hún til og með 2. maí 2020.

DEILA