Hólmavík: Lubbi fer á barnabókasafnið

Sérstök opnun fyrir leikskólabörn og foreldra verður á Barnabókasafni á Hólmavík mánudaginn 3. febrúar klukkan 16:00-17:00.
Þá fer Lubbi á bókasafnið en Lubbi er íslenskur hundur sem safnar málbeinum.

Alma Benjamínsdóttir les Lubbasögu klukkan 16:30 og Lubbaefni verður til sýnis.

Lubbi finnur málbein er málörvunarefni sem er hannað af Eyrúnu Ísfold Gísladóttur og Þóru Másdóttur, en þær eru báðar talmeinafræðingar.

Lestrarátak stendur nú yfir í leikskólanum og foreldrar eru hvattir til að vera duglegir að lesa fyrir börnin og með þeim.
Góða kynningu á Lubba má finna á síðunni http://www.lubbi.is/

Bókasafnið er til húsa í Grunnskólanum á Hólmavík og er opið á skólatíma og á þriðjudögum 17:30-18:30.

DEILA