Heimurinn og heima

Í upphafi vikunnar sat ég fund Global Deal í París. Nafn þessa fyrirbæris hljómar eins og fjármálafyrirtæki en þetta er hins vegar samstarf á heimsvísu til að koma á sanngjörnum vinnumarkaði, siðferðilegum viðskiptum og auka lífsgæði. Það er áþreifanleg breyting hjá alþjóðastofnunum síðustu árin, hvort sem litið er til OECD, Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eða Alþjóðabankans að orðið jöfnuður kemur sífellt oftar fyrir. Reyndar var til þess tekið á fundinum að ræðan sem framkvæmdastjóri OECD flutti hefði sómt sér í munni margra fulltrúa verkalýðsfélaga. Ástæða þess að þessi alþjóðasamtök eru farin að tala um aukinn jöfnuð er ekki endilega af því þau hafa séð ljósið heldur er misrétti í heiminum komið að þolmörkum og orðin uppspretta átaka innan samfélaga og víða um heim. Við erum komin að endastöð og eina leiðin áfram er að byggja brautir varðaðar auknum jöfnuði og auknu jafnrétti. Harðsvíruðustu kúgunarstofnanir skilja hvað klukkan slær; það er beinlínis ógn við frið að auka misrétti enn frekar.

Í okkar smættuðu mynd hér á Íslandi er þetta alveg jafn satt eins og úti í heimi. Að auka jöfnuð og jafnrétti er eina leiðin til að koma í veg fyrir vaxandi óánægju og átök. Undiraldan er sterk og styrkist með hverri hrokafullu yfirlýsingunni um að ekki sé hægt að gera meira fyrir láglaunafólk eða að ekki megi íþyngja útgerðarmönnum með auknum veiðileyfagjöldum, hvað þá að setja á hátekjuskatt til að dreifa byrðunum. Eina leiðin til að koma í veg fyrir vaxandi átök á vinnumarkaði og í samfélaginu í heild er að feta leið jöfnuðar, það er hægt með mörgum leiðum bæði í gegnum ákvarðanir stjórnenda ríkisins og sveitarfélaga. Að leita frjórra leiða til að vinna gegn misrétti getur jafnvel orðið til að leysa kjaradeilur sem virðast í hnút.

Að lokum vil ég fagna því samstarfi sem ASÍ og Neytendasamtökin voru að bindast í baráttunni gegn smálánastarfsemi. Vandi þeirra sem festast í neti þessara fyrirtækja er falinn en mjög raunverulegur og það er brýnt samfélagslegt verkefni að uppræta smálán á okurkjörum.

Góða helgi,

Drífa Snædal

forseti ASÍ

DEILA