Engin loðnuveiði þetta árið

Mynd sem sýnir yfirferð loðnumælingaskipa 16-20. febrúar. Í umræddri mælingu kemur til viðbótar yfirferð Árna Friðrikssonar út af Austfjörðum vikuna á undan.

Loðnumælingar rannsóknarskipsins Árna Friðrikssonar og fimm uppsjávarveiðiskipa, Heimaeyjar VE, Hákons EA, Aðalsteins Jónssonar SU, Barkar NK og Polar Amaroq, kláruðust nokkurn vegin í nótt.

Einungis lítið svæði út af Húnaflóa er óyfirfarið og mun Árni Friðriksson klára það þegar veður leyfir aftur.
Endanlegar niðurstöður þessara mælinga liggja því ekki fyrir en vegna þeirra hagsmuna sem eru í húfi telur Hafrannsóknastofnun rétt að upplýsa nú að magn hrygningarloðnu er vel undir síðustu mælingu sem framkvæmd var í byrjun febrúar.

Þessi niðurstaða er með þeim fyrirvara að smá svæði er eftir og þetta er frumúrvinnsla á gögnum en það eru taldar hverfandi líkur á að niðurstaðan breytist verulega hér eftir.
Frekari úrvinnsla mun fara fram á næstu dögum þegar Árni lýkur yfirferð sinni og að því loknu verður greint frá endanlegum niðurstöðum.

DEILA