Aðflugið að Ísafjarðarflugvelli eitt það fallegasta í Evrópu

Aðflug til Ísafjarðar. mynd: Isavia.

Á vefsíðu Isavia er vakin athygli á því að vefurinn PrivateFly.com setur aðflugið að Ísafjarðarflugvelli í flokk þeirra fallegustu í Evrópu. Tólf aðrir evrópskir flugvellir komust á lista í vali um fallegasta aðflugið, en Ísafjarðarflugvöllur er eini flugvöllurinn á Norðurlöndunum sem komst á listann.

Hægt er að kjósa um fallegasta aðflugið til 15. mars næstkomandi.

Um flugvöllinn segir :

„Flugvallarstæði Ísafjarðarflugvallar hefur lengi verið talið einstakt og hefur völlurinn oft komist á lista erlendra vefja yfir áhugaverð aðflug. Flugvöllurinn er enda staðsettur við sjó umkringdur háum og bröttum fjöllum í fremur þröngum firði. Við aðflugið er flogið inn Skutulsfjörð, meðfram fjallshlíð yfir byggðina á Ísafirði og tekin 180 gráðu beygja til vinstri í fjarðarbotninum áður en lent er á flugbrautinni hinum megin fjarðarins. Við réttar veðuraðstæður er einnig hægt að lenda á hinum brautarendanum. Aðflugið úr þeirri átt krefst þess ekki að flogið sé meðfram fjöllum að fjarðarbotni áður en lent er og þykir mörgum það því ekki jafn mikilfenglegt.“

Lesendur PrivateFly.com velja á hverju ári fallegasta aðflugið í sex heimshlutum. Nú hafa 74 flugvellir verið valdir á úrtakslista og er Ísafjarðarflugvöllur einn af þrettán evrópskum flugvöllum sem komust á listann. Um er að ræða jafnt stóra sem smáa flugvelli og mjög fjölbreytt flugvallastæði. Á listanum eru meðal annars flugvellir í borgarlandslagi, eyjaflugvellir, vellir með aðflug frá strönd og vellir sem staðsettir eru á fjallstoppi.

Að neðan eru myndbönd sem finna má á Youtube af aðflugi að báðum brautarendum Ísafjarðarflugvallar.

 

 

 

DEILA