það er gott að búa í Bolungavík!

Grunnskóli Bolungavíkur. Mynd: bolungarvik.is

Skóladagvist og skólamatur er ódýrast í Bolungavík í þeim þremur sveitarfélögum  sem Bæjarins besta athugaði í framhaldi af verðlagskönnum ASÍ sem greint var frá í gær.

Kostnaður á mánuði fyrir fyrsta barn er 24.591 kr. í Bolungavík, 31.990 kr. í Vesturbyggð og 34.085 kr. í Ísafjarðarbæ.

Mánaðarlegur kostnaður er 28% lægri í Bolungavík en í Ísafjarðarbæ eða 9.494 kr. sem gerir 94.940 kr yfir árið miðað við 10 mánaða vistun barns.

Útreikningarnir miðast við forsendur ASÍ, sem eru vistun í 21 dag á mánuði með hádegismat og hressingu á hverjum degi og 3 klst í vistun á dag eða alls 63 klst yfir mánuðinn.

Það eru  maturinn og hressingin  sem eru ódýrari í Bolungavík en í hinum sveitarfélögunum. Í Ísafjarðarbæ er það matarkostnaðurinn sem sker sig úr og veldur því að kostnaðurinn er mestur þar.

Ísafjarðarbær Vesturbyggð Bolungavík
Vistun:    18.860 20.790 20.538   ath 13.692
hressing:   4.095   4.200      798
matur:     11.130   7.000   3.255
samtals:   34.085  31.990   24.591  ath 17.745

 

Ísafjarðarbær Vesturbyggð Bolungavík Einfj.
Vistun/klst 390 330 326 63
hressing 195 200 38 21
matur 530 550 155 21
Í Ísafjarðarbæ er hámark 18.860 kr. á mat yfir mánuðinn.
Í Vesturbyggð er hægt að kaupa mánaðaráskrif á mat og kostar
það 7.000 kr í stað 11.550 kr. skv. verðskrá.

 

 

Systkinaafsláttur

Systkinaafsláttur fyrir annað barn er mestur í Vesturbyggð eða 50%, í Bolungavík 35% og 30% í Ísafjarðarbæ. Fyrir þriðja barn er 75% afsláttur í Vesturbyggð, en frítt í Bolungavík og frítt vistunargjald á Ísafirði.

 

Svo samkvæmt þessari afmörkuðu úttekt er ódýrast fyrir barnafólk að búa í Bolungavík. En hafa ber í huga að það eru fleiri útgjaldaliðir sem þarf að horfa til þegar búsetuskilyrðin eru metin í heild sinni.

 

leiðrétting: 17.745 kr. í Bolungavík

Í tölum um kostnað fyrir vistun í Bolungavík er reiknað með gæslu í 3 klst , en skv. gjaldskránni er fyrsta klst gjaldfrjáls. Það þýðir að greitt er fyrir 42 klst en ekki 63. Við það lækkar kostnaður við vistun í 13.692 kr. úr 20.538 kr. Heildarkostnaður verður þá 17.745 kr fyrir mánuðinn, sem gerir Bolungavík langódýrasta sveitarfélagið. Er það 48% ódýrara en Ísafjarðarbær.

DEILA