Teitur Björn vill stjórnsýsluúttekt á Hafró

Teitu Björn Einarsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi telur tímabært að fram fari stjórnsýsluúttekt á starfsemi Hafrannsóknarstofnunar. Hann segir að eitthvað mikið sé að í stjórnsýslu hafrannsókna. „Það er ólíðandi að grundavallaratriði eins og loðnuleit sé í óvissu og eiginlega í lamasessi þrátt fyrir auknar fjárveitingar og að uppi sé einhver vafi hver beri nú ábyrgð á þeim hafrannsóknum“ segir Teitur Björn.

„En fleira kemur til og annað mál er ekki síður alvarlegra. Það er hvernig Hafró hefur haldið á málum er viðkemur rannsóknum og ráðgjöf vegna fiskeldis. Enn hefur Hafró ekki lokið við gerð nýs áhættumats fyrir fiskeldi þar sem tekið er tillit til mótvægisaðgerða, eins og ný lög frá því síðasta sumar kveða á um. Reyndar boðaði Hafró vorið 2018 að nýtt og endurbætt áhættumat myndi líta dagsins ljós þá um sumarið þegar sól væri hæst á lofti. Nú hækkar sól á ný en fiskeldi er enn haldið niðri af hálfu stjórnvalda.“

Skoða þurfi hvernig til hafi tekist með sameiningu Hafrannsóknarstofnunar og Veiðimálastofnunar árið 2016. „Það læðist að mér sá óþægilegi grunur að eitthvað mikið hafi farið úrskeiðis í starfsemi Hafró við sameiningu Veiðimálastofnunar og Hafrannsóknarstofnunar sumarið 2016. Tímabært er að Alþingi skoði málið ofan í kjölinn og leiti liðsinnis Ríkisendurskoðanda. Það eru vandfundin brýnni mál en að stjórnvöld sinni ráðgjöf um nýtingu sjávarauðlindarinnar ávallt eins og best verður á kosið.“

 

 

DEILA