Starfshópur um aðgerðir á Flateyri fundar á Flateyri og Ísafirði

Starfshópur sem skipaður var af forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra til að móta tillögur um aðgerðir til að treysta atvinnulíf og búsetu á Flateyri við Önundarfjörð í kjölfar snjóflóðsins þann 14. janúar fundar á Flateyri og Ísafirði í gær og í dag, fimmtudag.
Hópurinn mun hitta fulltrúa atvinnulífs á svæðinu, meðlimi hverfisráðs auk viðbragðsaðila. Þá hitti starfshópinn íbúa á Flateyri á Gunnukaffi frá klukkan 19:30 í gær, miðvikudag.

Starfshópurinn er þannig skipaður:

Teitur Björn Einarsson, lögmaður, fulltrúi fjármála- og efnahagsráðherra, formaður
Lísa Kristjánsdóttir, aðstoðarmaður forsætisráðherra
Hermann Sæmundsson, skrifstofustjóri í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu
Þórdís Sif Sigurðardóttir, starfandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar
Steinunn Guðný Einarsdóttir, varabæjarfulltrúi í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar

Samkvæmt skipunarbréfi er verkefni hópsins að kanna leiðir til að byggja upp traust íbúa Flateyrar á samfélagslegum innviðum og gera tillögur um aðgerðir sem treyst geta stoðir byggðarinnar.

Starfshópnum er ætlað að skila tillögum sínum fyrir 1. mars 2020.

DEILA