Smáforrit fyrir rafræna skráningu afla

Fiskistofa hefur látið smíða, í samstarfi við Hafrannsóknastofnun og hugbúnaðarfyrirtækið Stokk, smáforritið Afladagbókina. Innleiðing á notkun smáforritsins fyrir snjalltæki í stað afladagbóka á pappír hefst á næstunni.

Stærri skip skila rafrænum afladagbókum til Fiskistofu en flestallir smábátar hafa skilað afladagbókum á pappír.

Hægt er að sækja forritið í App Store og Play Store í snjalltækjum en beðið er eftir reglugerð frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu um notkun smáforritsins áður en hún getur hafist.

Afladagbókin virkar þannig að eingöngu þarf að vera í síma- eða netsambandi við upphaf og lok veiðiferðar. Afladagbókin skráir sjálfkrafa staðsetningu bátsins við veiðar og skipstjórnarmenn skrá afla, ástand hans og meðafla með einföldum hætti í forritinu.

Fáum blandast hugur um að með tilkomu appsins er stigið stórt framfaraskref sem felur í sér bætta yfirsýn og vinnusparnað fyrir útgerðir, skipstjórnarmenn sem og stjórnsýslu.

DEILA