Ráðherra skipar samstarfsráð MAST

.

Ein nefndin enn hefur verið skipuð en Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað samstarfsráð Matvælastofnunar.

Innan samstarfsráðsins mun Matvælastofnun hafa reglubundna samvinnu og samráð við þá aðila, félög, samtök og stofnanir sem tengjast starfsemi hennar.
Stofnunin mun kynna árlegar áætlanir um störf stofnunarinnar, skýrslur um starfsemina og önnur mikilvæg málefni sem tengjast starfi stofnunarinnar. Fulltrúum samstarfsráðs er einnig heimilt að óska eftir umfjöllun um tiltekin málefni á fundum ráðsins. Samstarfsráðið er mikilvægur vettvangur til samráðs og skipta á upplýsingum sem ætlað er að auka gagnkvæman skilning og gagnsæi stjórnsýslunnar.

Samkvæmt reglugerð nr. 940/2019 skipar ráðherra ráðið samkvæmt tilnefningu 16 aðila.

Guðrún Vaka Steingrímsdóttir, tilnefnd af Bændasamtökum Íslands
Sif Traustadóttir, tilnefnd af Dýraverndarsambandi Íslands
Tómas Jónsson, tilnefndur af Dýralæknafélags Íslands
Guðrún Sigmundsdóttir, tilnefnd af Embætti landlæknis
Guðný Hjaltadóttir, tilnefnd af Félagi atvinnurekenda
Þórhallur Ingi Halldórsson, tilnefndur af Háskóla Íslands
Ragnhildur Helga Jónsdóttir, tilnefnd af Landbúnaðarháskóla Íslands
Elías Blöndal Guðjónsson, tilnefndur af Landssambandi veiðifélaga
Oddur Már Gunnarsson, tilnefndur af Matís
Gunnar Alexander Ólafsson, tilnefndur af Neytendasamtökunum
Arndís Ósk Ólafsdóttir, tilnefnd af Samorku
Heiðrún Björk Gísladóttur, tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins
Heiðmar Guðmundsson, tilnefndur af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi
Gunnar Sigurðarson, tilnefndur af Samtökum iðnaðarins
Gréta María Grétarsdóttir, tilnefnd af Samtökum verslunar og þjónustu
Guðný Rut Pálsdóttir, tilnefnd af Tilraunastöð HÍ, Keldum

Í reglugerðinni sem er mjög stutt segir aðeins að Matvælastofnun skuli hafa reglubundið samráð við samstarfsráðið og miðla upplýsingum um mikilvæg málefni er tengjast starfi stofnunarinnar og halda fundi í það minnsta tvisvar á ári.

DEILA