Ölver safngripur númer eitt

Ölver með öllum farviðum er safngripur nr 1 í aðfangabók Byggðasafns Vestfjarða.

Sexæringurin er smíðaður í Bolungarvík árið 1941 af Jóhanni Bjarnasyni, bátasmið og fyrrum árabátaformanni. Það var að frumkvæði Bárðar G. Tómassonar skipaverkfræðings að Ölver var afhentur Byggða- og sjóminjasafni Ísfirðinga, eins og safnið hét þá, til eignar og varðveislu.

Núverandi uppsátur Ölvers er við verbúðina Ósvör í Bolungarvík til sýnis á sumrin.

DEILA