Nýársfagnaður kiwanisklúbbsins Bása Ísafirði

Frá nýárssafni Bása. Mynd: bb.is

Hinn árlegi nýársfagnaður Kiwanisklúbbsins Bása á Ísafirði verður haldinn á sunnudaginn á Hlíf og hefst hann kl. 15:00. Í boði verða að venju girnilegar kaffiveitingar og skemmtiefni. Baldur Geirmundsson og Magnús Reynir Guðmundsson  munu spila fyrir gesti.

Nýársfagnaðurinn er árlegur og nýtur mikilla vinsælda og þegar best hefur látið hafa mætt um 120 manns en allir eldri borgarar eru velkomnir.

DEILA