Íbúafundir í kjölfar snjóflóðanna á Flateyri og í Súgandafirði

Bæjarstjórinn í Ísafjarðarbæ og lögreglustjórinn á Vestfjörðum boða til íbúafunda í kjölfar snjóflóðanna á Flateyri og í Súgandafirði þann 14. janúar 2020.

Íbúafundurinn á Flateyri verður haldinn mánudaginn 20. janúar kl. 17:00 í Félagsbæ.
Íbúafundurinn á Suðureyri verður haldinn mánudaginn 20. janúar kl. 20:00 í félagsheimilinu á Suðureyri.
Fundarstjóri verður Rögnvaldur Ólafsson frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

Dagskrá:
Ávarp bæjarstjóra

Tryggingarvernd Náttúruhamfaratryggingar Íslands. Hulda Ragnheiður Árnadóttir framkvæmdastjóri Náttúruhamfaratryggingar Íslands

Snjóflóðin 14. Janúar 2020. Tómas Jóhannesson, fagstjóri hjá Veðurstofu Íslands

Skipulag áfallahjálpar. Margrét Geirsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Ísafjarðarbæjar

Umræður

Á fundinum verða auk bæjarstjóra og fulltrúa lögreglustjórans á Vestfjörðum fulltrúar frá eftirfarandi aðilum:
Ofanflóðasjóði
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
Rauða krossi Íslands
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra
Umhverfisstofnun
Svæðisstjórn björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar

DEILA