Hörður Högnason hættir eftir 38 ára starf

Hörður Högnason hefur látið af störfum við Heilbrigðisstofnun Vestfjarða eftir 38 ára starf.

Það var 1. september 1981 sem Hörður Högnason, þá 29 ára hjúkrunarfræðingur, kom í fast starf hjá Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði, sem þá var rekið í gamla sjúkrahúsinu. Þá hafði hann verið nokkrum sinnum afleysingamaður meðfram skóla en ákvað að ráða sig til skamms tíma. En hann ílentist og tók síðar hann við af móður sinni sem framkvæmdastjóri hjúkrunar í stofnun sem haft hefur a.m.k. fimm kennitölur.

 

Prófskírteinið, sem undirritað var af skólastjóra hjúkrunarskólans 13. september 1979, bar þess merki að þá var óalgengt að karlar sinntu hjúkrun; þar er misritað að hún hafi stundað verklegt nám á ýmsum stöðum og hlotið fyrir það prýðilega einkunn.

Meðfram störfum sem framkvæmdastjóri hjúkrunar—sem í gegnum tíðina hefur innifalið mörg hlutverk sem nú falla til dæmis á innkaupastjóra, launafulltrúa og deildarstjóra—hefur hann verið svæfingarhjúkrunarfræðingur stofnunarinnar. Sem slíkur hefur hann verið meira og minna á bakvakt alla sína starfstíð.

 

Hörður var kvaddur við athöfn 4. desember og lauk formlega störfum um áramótin. Í ræðu sinni sagði Gylfi Ólafsson forstjóri að Hörður væri vinamargur, jákvæður, ljúfur, góður og maður sátta. Honum væri mjög annt um stofnunina, starfsfólk hennar og skjólstæðinga. Alla tíð hefði verið litið upp til hans, auðvelt væri að leita til hans og samstarfsfólk sammála um að hann væri góður kennari. Í gegnum áföll og hræringar innan og utan stofnunar var Hörður stólpi sem hægt var að treysta á.

 

Hörður sagði í kveðjuræðu sinni að tíminn hafi liðið hratt og að vinnan hafi verið skemmtileg, krefjandi og gefandi; vinnustaðurinn góður og samstarfsfólkið afbragðsgott. Hann sagði að framtíð stofnunarinnar væri björt, og óskaði eftirmönnum sínum góðs gengis; Hildur Elísabet Pétursdóttir tók við af Herði sem framkvæmdastjóri hjúkrunar og Sara Guðmundsdóttir sem svæfingarhjúkrunarfræðingur.

DEILA