Heilbrigðisráðherra: Tryggjum íbúum í dreifðum byggðum landsins sem greiðastan aðgang að heilbrigðisþjónustu

Starfshópurinn skilaði niðurstöðum sínum í tveimur skýrslum. Annars vegar er skýrsla sem dregur upp framtíðarsýn hópsins í bráðaþjónustu og sjúkraflutningum með hliðsjón af markmiðum heilbrigðisstefnu til ársins 2030. Hins vegar er skýrsla með ýtarlegri umfjöllun um megintillögu hópsins varðandi MBS, þ.e. um skipulag miðstöðvarinnar, hlutverk og helstu verkefni. Þar fylgja jafnframt drög starfshópsins að þjónustuviðmiðum sem lagt er til að verði lögð til grundvallar að skipulagi bráðaþjónustu og sjúkraflutninga.

Meginniðurstaða hópsins er að umsjón með sjúkraflutningum á landinu öllu þurfi að vera á einni hendi. Lagt er til að sett verði á fót miðstöð bráðaþjónustu og sjúkraflutninga (MBS) sem hafi víðtækt hlutverk með það að markmiði að samræma þjónustuna, veita faglegan stuðning, annast þjálfun og þróun fagstétta á þessu sviði og sinna gæðaeftirliti.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir verulegan feng í tillögum starfshópsins og greinilegt að mikil vinna og faglegur metnaður liggi að baki: „Það er líka mikið í húfi. Vel skipulagðir, skilvirk og öruggir sjúkraflutningar eru einn af hornsteinum heilbrigðisþjónustunnar. Þeir eru jafnframt afgerandi þáttur í því að tryggja íbúum í dreifðum byggðum landsins sem greiðastan aðgang að heilbrigðisþjónustu og stuðla þannig að auknum jöfnuði óháð búsetu“ segir heilbrigðisráðherra.

DEILA