Á morgun er spáð Vestanátt en hún er sú versta á Breiðafirðinum , segir í tilkynningu frá Sæferðum , svo ferðinni á morgun verður flýtt og það verður síðan tekin ákvörðun á morgun líklega með ferðina á fimmtudag.
Á morgun verður áætlunin þannig:
Stykkishólmur kl. 13.00
Brjánslækur kl. 16.00
Einnig er áframhaldandi slæm veðurspá á fimmtudag 23/01 og eru vegfarendur beðnir um að fylgjast með á heimasíðu Sæferða ef það hyggur á að ferðast með Baldri
Mikilvægt er að bóka sig í allar ferðir hjá Baldri.