Arnarlax fær ASC vottun á eldissvæðið við Hringsdal

Laxeldisfyrirtækið Arnarlax fékk á dögunum ASC vottun á framleiðslu sína við Hringsdal í Arnarfirði. ASC (Aquaculture Stewardship Council) er ein strangasta umhverfisvottun þegar kemur að fiskeldi og er þekkt á mörkuðum um allan heim.

ASC vottunarstaðallinn hefur verið þróaður meðal annars af World Wildlife Fund (WWF) en til að fá vottun þurfa fyrirtækin meðal annars að lágmarka umhverfisáhrif og starfa í sátt við samfélag. ASC vottun er hliðstæð MSC staðlinum sem er þekktasti umhverfisstaðallinn fyrir sjávarafurðir nema þessi staðall er aðlagaður eldisafurðum.

Fyrirtæki sem standast ASC vottun skuldbinda sig til að lágmarka áhrif á umhverfið á ýmsa vegu. Taka þarf tillit til villtra laxfiskastofna, fugla, sjávarspendýra og annara lífvera sem búa í námunda við eldissvæðin svo eitthvað sé nefnt en votta þarf hvert eldissvæði fyrir sig.

DEILA