Árleg garðfuglahelgi Fuglaverndar

Skógarþröstur. Mynd: Sindri Skúlason.

Árleg garðfuglahelgi Fuglaverndar stendur yfir dagana 24. – 27. janúar 2020 segir í fréttatilkynningu frá Fuglavernd.

Telja í eina klst

Framkvæmd athugunarinnar er einföld, þú velur stund og stað og það þarf bara að fylgjast með garði í einn klukkutíma einhvern þessara daga. Athugendur velja hvaða dag þeir fylgjast með garðfuglunum eftir veðri og aðstæðum. Oft er gott að velja klukkutíma í ljósaskiptunum á morgnana, eða fyrir rökkur þegar fuglarnir eru að ná sér í forða fyrir kalda vetrarnóttina.

Þátttakendur skrá hjá sér hvaða fuglar koma í garðinn og skrá mesta fjölda af hverri tegund á meðan athugunin stendur yfir. Talningin miðar við þá fugla sem eru í garðinum en ekki þá sem fljúga yfir, þú telur þá sem koma í fuglafóðrið, setjast á grein og hvíla sig. Ekki má leggja saman. Þetta er til að forðast tvítalningar á sama fuglinum, sem ef til vill kemur á 15 mínútna fresti í garðinn. Að lokinni athugun skal skrá niðurstöður rafrænt á vef Fuglaverndar​ ​www.fuglavernd.is​.
Ekki þarf  að vera félagi í Fuglavernd til að taka þátt, aðalatriðið er að vera með og Fuglavernd vill fá sem flesta sem fóðra fugla til að vera með.

Einnig er hægt að hlaða niður hjálparblaði talningarinnar, sem er með myndum af algengum fuglategundum og er það tilvalið fyrir börn og þá sem eru að stíga fyrstu skrefin í fuglaskoðun.

Fuglafóðrun

Ef fuglunum er ekki gefið reglulega þá er gott er að hefja undirbúning talningar nokkrum dögum áður með því að gefa daglega til að lokka að fugla. Misjafnt er hvaða fóður hentar hverri fuglategund. Epli eru vinsæl hjá mörgum fuglum og auðvelt að koma þeim fyrir með því að skera þau í tvennt eða stinga kjarnann úr þeim og festa á trjágrein.

Nánari upplýsingar um garðfugla og fóðrun þeirra er hægt að finna á vef Fuglaverndar, https://fuglavernd.is/verkefnin/gardfuglar/fodrun-gardfugla/

Í vefverslun Fuglaverndar, ​https://fuglavernd.is/vefverslun/​ fæst bæklingurinn Garðfuglar, 24 bls með skýringarmyndum, fuglafóður, fóðurhús og fóðrarar sem selt er til styrktar félaginu.

Upplýsingar um garðfuglahelgi er að finna á vef Fuglaverndar:

https://fuglavernd.is/verkefnin/gardfuglar/gardfuglahelgi/

DEILA