40% lækkun komugjalda

Almenn komugjöld í heilsugæslu lækkuðu 1. janúar síðastliðinn úr 1.200 krónum í 700 krónur. Gjaldskrár vegna heilbrigðisþjónustu að öðru leyti hækkuðu um 2,5%. Bótafjárhæðir slysatrygginga almannatrygginga og dagpeningar sjúkratryggðra hækkuðu um 3,2%.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Heilbrigðisráðuneytinu.

Lækkun almennra komugjalda í heilsugæslunni 1. janúar sl. nemur rúmum 40%. Lækkunin er bundin við komur fólks á dagvinnutíma á heilsugæslustöðinni þar sem það er skráð. Leiti fólk á aðra heilsugæslustöð er komugjaldið óbreytt, 1.200 krónur. Börn, öryrkjar og þeir sem eru 67 ára og eldri greiða ekki komugjöld í heilsugæslu. Áformað er að fella komugjöld í heilsugæslu á dagvinnutíma niður að fullu árið 2021 og er það liður í fleiri aðgerðum til að lækka greiðsluþátttöku sjúklinga. Þar á meðal eru auknar niðurgreiðslur sjúkratrygginga vegna tannlæknisþjónustu, lyfjakostnaðar og tiltekinna hjálpartækja, auk rýmri reglna um ferðakostnað sjúklinga.

DEILA