Þjónusta við fiskeldi á Vestfjörðum – opnir fundir

Fulltrúar frá VAKA og Akvaplan Niva bjóða til funda um fiskeldismál á Tálknafirði og Ísafirði, dagana 3. og 4. desember nk . Öllum er frjálst að mæta á hvorn staðinn sem er. Tilgangurinn er að koma og hitta eldismenn og aðra þá sem láta sig fiskeldi varða og opna á létt spjall um þá þjónustu sem VAKI og Akvaplan Niva bjóða eldisfyrirtækjum. Einnig munu forsvarsmenn Arctic fish og Arnarlax vera á þessum fundum og ræða við íbúa um núverandi starfsemi og framtíðarplön.

 

Fundirnir byrja á 20 mín. kynningum frá VAKA og Akvaplan Niva til að opna umræðuna. Við verðum á Tálknafirði þann 3. desember á Hópinu kl.18.00 og á Ísafirði þann 4. desember á Hótel Ísafirði kl. 12.00. Léttar veitingar verða í boði.

Allir velkomnir.

DEILA