Nýtt skattþrep sem lækkar skattbyrði um áramótin 2020.

Nýlega samþykkti Alþingi umfangsmiklar breytingar á tekjuskatti einstaklinga. Ábati breytinganna skilar sér til allra tekjutíunda en sérstaklega til lág- og millitekjuhópa segir í fréttatilkynningu fjármálaráðuneytisins. Nú um áramótin tekur gildi fyrri áfangi breytinganna þegar tekið verður upp nýtt þriggja þrepa kerfi á sama tíma og grunnþrep tekjuskattskerfisins lækkar. Síðari áfanginn tekur gildi 1. janúar, 2021 og mun fela í sér enn frekari lækkun á grunnþrepi tekjuskatts.

Þau fjárhæðamörk sem birtast í sjálfum lagabreytingunum, sem samþykktar voru á Alþingi fyrr í vetur, miða við árið 2019.

Á grundvelli þess eru skatthlutföll og fjárhæðamörk árið 2020 eftirfarandi:

2020
Prósenta í 1. þrepi: 35,04% (þar af 14,44% útsvar)
Prósenta í 2. þrepi: 37,19% (þar af 14,44% útsvar)
Prósenta í 3. þrepi: 46,24% (þar af 14,44% útsvar)
  Á ári Á mánuði
Persónuafsláttur: 655.538 kr. 54.628 kr.
Þrepamörk milli 1. og 2. þreps: 4.042.995 kr. 336.916 kr.
Þrepamörk milli 2. og 3. þreps: 11.350.472 kr. 945.873 kr.

 

Skatthlutfall í nýju grunnþrepi verður 35,04%, þar af 20,60% til ríkis.

Skatthlutfall í nýju miðþrepi er 37,19%, þar af 22,75% til ríkis og skatthlutfall

í 3. þrepi er áfram 46,24%, þar af 31,80% til ríkis.

Skattleysismörk tekjuskatts og útsvars verða samkvæmt því 162.398 kr. á mánuði að teknu tilliti til 4% lögbundinnar iðgjaldsgreiðslu launþega í lífeyrissjóð samanborið við 159.174 kr. á mánuði árið 2019. Hækkun skattleysismarka er því 2,0% í samræmi við hækkun vísitölu neysluverðs.

DEILA