Hrafnshóll ehf fær fimm lóðir til nýbygginga á Ísafirði

Frá byggingarsvæðinu við Tungubraut.

Hrafnshóll ehf í Hafnarfirði hefur fengið úthlutað fimm lóðum undir raðhús  við Tungubraut nr. 2-4-6-8 og 10 Ísafirði. Í umsókn segir að byggja eigi 6 – 8 íbúða raðhús. Umsóknin var samþykkt á síðasta fundi bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar, sem haldinn var 19. desember.

Lóðarumsókn fellur úr gildi hafi teikningar ekki borist Ísafjarðarbæ innan 6 mánaða og framkvæmdir ekki hafist innan 12 mánaða frá úthlutun.

Fyrirtækið Hrafnshóll ehf hefur sótt um lóðir undir íbúðarbyggingar víða á Vestfjörðum. það hefur þegar lokið smíði á þremur raðhúsum á Reykhólum fyrir sveitarfélagið. Hafnar eru framkvæmdir við fimm íbúðir í Súðavík  og fyrirtækið hefur fengið úthlutað tveimur lóðum á Bíldudal.

DEILA