Áhersluverkefnum fyrir árið 2020

Vestfjarðastofa hefur opnað fyrir tillögur að áhersluverkefnum fyrir árið 2020. Verkefnin þurfa að falla að framtíðarsýn og áherslum Sóknaráætlunar Vestfjarða 2020-2024.
Aðeins eru um tillögur að ræða og því ekki sjálfgefið að verkefnið hljóti framgöngu sem áhersluverkefni þó að tillagan sé innsend. Tillögur verða metnar af starfshópi sem forgangsraða þeim eftir tengingu við markmið og áherslur Sóknaráætlunar. Þær tillögur sem falla að Sóknaráætlun Vestfjarða 2020-2024 verða lagaðar fyrir samráðsvettvang og unnar á faglegan hátt. Stjórn Vestfjarðastofu mun taka endanlega ákvörðun hvort verkefnið hljóti framgöngu sem áhersluverkefni.

Tillögur að verkefnum geta verið hugmyndir sem eru skammt á veg komnar eða vel útfærðar verkefnisáætlanir.

Verkefnin þurf að uppfylla einhverjar af megin áherslum Sóknaráætlunar Vestfjarða sem eru t.d.

Efla nýsköpun á Vestfjörðum
Auka framleiðni og vöxt fyrirtækja
Auka samstarf skóla á öllum stigum
Auka samvinnu á milli sveitarfélaga
Auka þjónustuframboð á Vestfjörðum
Skapa jákvæða ímynda af Vestfjörðum
Vinna að umhverfisvakningu með sjálfbærni að leiðarljósi
Hækka menntunarstig á Vestfjörðum
Auka fjölbreytileika starfa á svæðinu
Verkefni sem lýtur að því að auðga mannlíf, menningu og menntun á svæðinu.
Áhersluverkefnin geta verið á sviði menningarmála, atvinnulífs, nýsköpunar, menntamála eða almenn byggðaþróunarverkefni sem ná til allra Vestfjarða eða ákveðinna svæða.

Skila þarf tillögum að áhersluverkefnum fyrir kl. 16 þann 20. desember

DEILA