Um Flateyri og fólkið þar

Út er komin bókin Er það hafið eða fjöllin? – Um Flateyri og fólkið þar. Höfundur bókarinnar er Sæbjörg Freyja Gísladóttir.

Í bókinni tekst Sæbjörg á við spurninguna um það hvers vegna fólk búi á Flateyri. Þetta er að vísu ekki skýrsla um byggðamál. Og þó. Það er ekki á hverjum degi sem menn fá jafn skemmtilega frásögn um það sem fyrr féll undir hugtakið jafnvægi í byggð landsins. Hún er prýðileg.
Hún er sönn og hún er gefandi lestur. Og vestfirskur húmor er allt um kring.

Í ótal viðtölum lætur höfundur fólkið sjálft, núverandi íbúa og brottflutta, segja hispurslaust frá lífi sínu, amstri, áhyggjum, draumum og lífsgleði. Skjaldan, eins og sagt var upp á vestfirsku í gamla daga, hefur svo hispurslaus frásögn um lífið í krummaskuðunum sést á prenti.

DEILA