Straumlaust í Árneshreppi í 2227 mínútur -tengipunktur bætir ástandið

Straumlaust var í Árneshreppi í samtals 2227 mínútur á árunum 2015-18. Þetta kemur fram í svari Iðnaðarráðherra Þórdísar Gylfadóttur við fyrirspurn Guðmundar Andra Thorssonar, alþingismanns.

Dreifikerfi Orkubús Vestfjarða frá flutningskerfi Landsnets að Árneshreppi eru: Hólma­vík­ur­lína 2, 33 kV lína, Drangs­neslína 1 og Norður­lína 1 sem báðaer eru 11 kV línur.

Fram kemur í svari ráðherrans að  tengipunktur í Ísafjarðardjúpi muni opna á möguleika á tengingu við dreifikerfi Orkubús Vestfjarða. Slík tenging mundi bæta afhendingaröryggið í dreifikerfinu. Bætt afhendingaröryggi frá flutningskerfinu hefur í för með sér aukið afhendingaröryggi til endanlegra notenda undirliggjandi dreifikerfis.

 

Þingmaðurinn spyr hvort hugmyndir um að fækka straumleysismínútum á norðanverðum Vestfjarðakjálkanum með tengingu Hvalárvirkjunar, byggingu nýs tengivirkis við Ísafjarðardjúp og tengingu yfir Ófeigsfjarðarheiði og loks yfir Kollafjarðarheiði í enn nýtt tengivirki í Kollafirði séu unnar í samráði við ráðuneytið og ráðherra og spyr ennfremur ráðherrann að því hver muni standa undir fjárfestingunni  „í ljósi þess að ítrekað hefur komið fram hjá Landsneti á liðnum árum að tekjur af slíkum fjárfestingum stæðu ekki undir kostnaði?“

Hvalárvirkjun stendur undir kostnaðinum við tengipunktinn

Í svari ráðherra kemur fram að Landsnet byggir upp flutningskerfið í samræmi við raforkulög og stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku. Framkvæmdir Landsnets eru háðar eftirliti Orkustofnunar sem er stjórnvaldið í þessi tilliti.

Þá segir ráðherrann að  forsenda nýs tengipunkts í Ísafjarðardjúpi er ný orka sem komi inn á flutningskerfið sem auki flutningstekjur Landsnets og „nýleg greining Landsnets, miðuð við 55 MW uppsetta aflgetu, bendir til að tengigjald og auknar flutningstekjur standi undir kostnaði við slíka tengingu.“

 

DEILA