Sett prestur í Patreksfjarðarprestakalli

Biskup Íslands auglýsti eftir presti eða guðfræðingi til að sinna prestsþjónustu í Patreksfjarðarprestakalli, Vestfjarðarprófastsdæmi. Um tímabundna setningu er að ræða, frá 1. nóvember til 31. mai 2020.
Biskup Íslands hefur sett Bryndísi Svavarsdóttur til prestsþjónustunnar.
Bryndís er fædd 30. nóvember 1956 í Hafnarfirði.
Bryndís hefur fengist við ýmis störf á almennum vinnumarkaði. Vann sem fiskvinnslukona í Hafnarfirði, starfskona á Kópavogshælinu og Hrafnistu. Starfaði sem læknaritari, bankastarfsmaður og við afgreiðslustörf.
Í rúma tvo áratugi var hún heimavinnandi húsmóðir.
Bryndís lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum Hraðbraut 2005, BA-prófi í guðfræði frá Háskóla Íslands 2008 og cand. theol.-prófi frá sama skóla 2012.
Bryndís hefur margvíslega reynslu úr kirkjulegu starfi. Hún var sjálfboðaliði í æskulýðsstarfi og sunnudagaskóla Ástjarnarkirkju með námi í guðfræðideildinni. Síðar æskulýðsfulltrúi Ástjarnarkirkju; sá einnig um æskulýðsstarf í Kálfatjarnarkirkju. Þá var hún æskulýðsstarfsmaður í Víðistaðakirkju og einnig í Digraneskirkju.
Hún er mikil útvistarkona og hefur verið skemmtiskokkari frá 1991.
Eiginmaður Bryndísar er Lúther Þorgeirsson, sjómaður. Þau eiga fjögur uppkomin börn.

DEILA