Innfjarðarækjukvóti í samræmi við ráðgjöf

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur gefið út reglugerð um leyfilegan heildarafla fyrir rækjuveiðar í Ísafjarðardjúpi og í Arnarfirði. Reglugerðin er í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar.

Í samræmi við varúðarsjónarmið lagði stofnunin til að rækjuveiðar verði ekki meira en 568 tonn í Ísafjarðardjúpi. Er það nokkur hækkun frá síðasta fiskveiðiári þegar leyfilegur heildarafli var 456 tonn. Þá lagði stofnunin til að rækjuveiðar í Arnarfirði verði ekki meiri en 197 tonn en það er einnig nokkur hækkun frá því fyrra þegar leyfilegur heildarafli var 139 tonn.

DEILA