Innbrot í Hamraborg

Lögreglan á Vestfjörðum leitar karlmanns sem meðfylgjandi myndin er af, í tengslum við rannsókn á innbroti í verslunina Hamraborg á Ísafirði, sem varð aðfaranótt sunnudagsins 24. nóvember sl.
Allir sem geta gefið upplýsingar um manninn eru hvattir til að hafa samband við lögregluna á Vestfjörðum í síma 444 0400 eða í einkaskilaboðum á facebooksíðu lögreglunnar.

DEILA