Fiskistofa í samstarfi við Grænlendinga

Á myndinni eru frá vinstri: Katrine Kærgaard, Iben Funch Døj, Mads Rossing Lund, Eyþór Björnsson, Mads Nedergaard, Signe Bork Hansen og Viðar Ólason.

Þann 10. október sl. var undirritaður í Nuuk á Grænlandi samningur um samstarf Íslands og Grænlands á sviði fiskveiðistjórnunar. Þjóðirnar eiga ríkra sameiginlegra hagsmuna að gæta þegar kemur að nýtingu auðlinda hafsins og eru fiskistofnar ein þeirra mikilvægustu. Samstarf Fiskistofu á Íslandi og Greenland Fisheries License Control Authority á Grænlandi hefur verið mikið og gott og er nú formfest með undirritun samningsins.
Samningurinn tekur til samstarfs við eftirlit með fiskveiðum sem felst m.a. í öruggri miðlun upplýsinga um veiðiskip þjóðanna og veiðar þeirra. Einnig felur samningurinn í sér samkomulag um miðlun þekkingar og þjálfun starfsfólks. Sá þáttur getur t.d. falist í því að eftirlitsmenn frá Grænlandi komi hingað til lands og íslenskir eftirlitsmenn fari til Grænlands til að fræðast um störf kollega sinna, bæði í formi fyrirlestra og í vettvangsferðum.
Samstarf Fiskistofu við systurstofnanir í nágrannalöndunum er umtalsvert og er veigamikill þáttur í því að tryggja ábyrga nýtingu auðlinda hafsins. Fiskistofa hefur áður gert formlega samninga við Noreg, Færeyjar og Rússland.

DEILA