Bolungarvík: Íbúakönnun í október

Íbúakönnun var framkvæmd 23. og 24. október 2019 að beiðni Bolungarvíkurkaupstaðar.
Lagðar voru fimm spurningar fyrir 235 Bolvíkinga 18 ára og eldri sem valdir voru handahófskennt úr þjóðskrá sem er 25% íbúa og svarhlutfall var 68%.

Spurningarnar voru:

1. Hversu jákvæð/ur eða neikvæð/ur ert þú gagnvart mögulegri sameiningu Bolungarvíkur við annað sveitarfélag?
2. Hvernig þykir þér líklegt að þú myndir kjósa ef kosið yrði í dag um sameiningu Bolungarvíkur við Ísafjarðarbæ?
3. Hversu hár finnst þér að hámarkshraði ætti að vera á umferðargötum í Bolungarvík?
4. Hversu jákvæð/ur eða neikvæð/ur ert þú gagnvart laxeldi í sjó í Ísafjarðardjúpi?
5. Hversu jákvæð/ur eða neikvæð/ur ert þú gagnvart því að útsýnispallur verði byggður á Bolafjalli?

Helstu niðurstöður voru að:

1. 82% voru mjög neikvæð eða frekar neikvæð gagnvart samningu við annað sveitarfélag.
2. 93% myndu hafna samneinginu við Ísafjarðarbæ ef kosið væri í dag
3. 61% vildu annan hámarkshraða en 50 km/klst á umferðargötum í Bolungarvík
4. 87% voru mjög jákvæð eða frekar jákvæð gagnvart laxeldi í sjó í Djúpinu og
5. 61% voru mjög jákvæð eða frekar jákvæð gagnvart útsýnispalli á Bolafjalli

DEILA