Æskujól víða um land

Meginþema okkar er fjölskyldan saman um jólin segir Benedikt Sigurðsson í Bolungarvík sem stendur fyrir 10 jólatónleikum víða um land.
Þetta eru tónleikar fjölskyldu og vina. Með ást og umhyggju fyrir hvort öðru búum við til okkar allra æskujól.

Þetta er sennilega í fyrsta skipti sem þrír unglingar fara í skipulagðan jólatúr á aðventunni.
Þau sem koma fram á þessum tónleikum eru:

Ari Ólafsson sem er landsmönnum kunnur. Tók m.a. þátt í Evróvision fyrir okkar hönd árið 2018. Hann er gríðarlega efnilegur tenórsöngvari og verður gaman að fylgjast með honum í framtíðinni.

Karolína Sif er 18. ára stúlka frá Bolungarvík. Karó er gríðarlega efnileg söngkona og hefur gefið út eitt lag á spotify með Jógvan Hansen „Þú ert sú eina“.

Pétur Ernir er 19. ára gamall Ísfirðingur. Pétur er hálfgert undrabarn og framúrskarandi hæfileikaríkur listamaður. Hann bæði spilar á píanó á tónleikunum sem og syngur. Einnig sér hann um allar útsetningar.

Mun þríeykið m.a. flytja frumsamið lag eftir Pétur og Karó á tónleikunum. Að sjálfsögðu heitir lagið Æskujól. Það er gæsahúðarlag fyrir allan peninginn, segir Benedikt.

Heiðursgestur á völdum tónleikum er Högni Egilsson úr hljómsveitinni Hjaltalín. Nafn hans er þegar orðið vörumerki.

Við látum ykkur kæru vinir eftir að meta það að við höfum ókeypis aðgang fyrir þau börn sem vilja sitja í fanginu á foreldrum/forráðamönnum. Við teljum það mjög táknrænt fyrir tilgang tónleikanna, þe, að halda utan um börnin okkar. Þau eiga það skilið.

Lokalagið verður heims um ból sem verður almennur söngur og þá fáum við alla þá krakka sem mæta á tónleikana til að koma til okkar og syngja með okkur fyrir gesti.

DEILA