Útboð á útsýnispalli á Bolafjalli

Bolungarvíkurkaupstaður hefur ákveðið að óska eftir tilboðum í byggingu útsýnispalls á Bolafjalli.

Meðal helstu verkþátta eru:
Borun og festing bergbolta.
Smíði og uppsetning stálvirkis.
Frágangur yfirborðs.

Verkinu skal að fullu lokið 15. október 2021.

Útboðsgögn fást afhent frá og með miðvikudeginum 2. október með því að hringja í síma 450-7000 og gefa upp nafn og heimilisfang, síma og netfang og fá útboðsgögn send í tölvupósti, eða gegn því að senda tölvupóst á netfangið finnbogi@bolungarvik.is.

Tilboðum skal skila rafrænt í tölvupósti á netfangið finnbogi@bolungarvik.is eða á skrifstofu Bolungarvíkurkaupstaðar, Aðalstræti 10-12, 415 Bolungarvík eigi síðar en kl. 14:00 miðvikudaginn 30. október 2019 þar sem þau verða opnuð kl. 14:15 í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.

DEILA