Tilboð í útsýnispall á Bolafjalli opnuð

Í dag voru tilboð í smíði og uppsetningu útsýnispalls á Bolafjalli opnuð í Ráðhúsi Bolungarvíkur.

Fjögur tilboð bárust:

  • 276.046.782 kr. – Ístak hf.
  • 197.725.738 kr. – Köfunarþjónustan ehf.
  • 158.505.000 kr. – Eykt ehf.
  • 169.315.966 kr. – Þotan ehf.

Kostnaðaráætlun er 193.000.000 kr.

Meðal helstu verkþátta eru:

  • Borun og festing bergbolta.
  • Smíði og uppsetning stálvirkis.
  • Frágangur yfirborðs.

Verkinu skal að fullu lokið 15. október 2021.

Engar athugasemdir hafa komið fram við framkvæmd útboðsins.

DEILA