fjölnota knattspyrnuhús: kynnt í bæjarráði

Lögð var fram í bæjarráði Ísafjarðarbæjar til kynningar í morgun skýrsla nefndar um byggingu fjölnota knattspyrnuhúss. Meirihluti nefndarinnar leggur til að verkið verði boðið út og vísar til lokaskýrslu nefndarinnar.

Ekki tímabært að bjóða út

Sigurður Jón Hreinsson, sem sat í nefndinni,  lagði fram eftirfarandi bókun:

„Undirritaður getur engan veginn tekið undir þá niðurstöðu meirihluta nefndarinnar um að tímabært sé að bjóða verkefnið út og sem lesa má í drögum að lokaskýrslu. Að mati undirritaðs hefur nefndin m.a. ekki sinnt því hlutverki sínu að gera úttekt á staðarvali, skipulagi í kringum áætlaðan byggingarstað og áfangaskiptingu framkvæmda.
Þrátt fyrir ítrekaðar óskir undirritaðs um að skoða betur staðsetningu og skipulag á Torfnesi, með tilliti til bestu nýtingu á svæðinu og meðferð á skattfé bæjarbúa, var því alltaf hafnað á gundvelli þess að „ekki væri pólitískur vilji fyrir annari staðsetningu“. Að því leyti brást meirihluti nefndarinnar algerlega hlutverki sínu.
Að mati undirritaðs er langur vegur frá því að tímabært sé að setja í útboð byggingu fótboltahúss. Sem dæmi má taka:
Ekki hefur verið svarað þeirri spurningu, hvort að starfsmaður þurfi að vera í húsinu eða ekki.
Allar forsendur fyrir staðarvali því sem deiliskipulag byggir á, hafa reynst rangar.
Þessi áform um uppbyggingu á Torfnesi eru byggð á afar takmarkaðri umfjöllun og byggja í stórum atriðum á röngum gögnum, rökleysu, þversögnum, hringrökum og jafnvel blekkingum.
Áformin um byggingu fótboltahúss eru ábyrgðarlaus út frá fjárhag bæjarins, kalla á umtalsverða hækkun á skuldum bæjarsjóðs og auka rekstrarkostnað bæjarins um tugi milljóna árlega.
Undirritaður mun skila eigin skýrslu með niðurstöðu um starf nefndarinnar til bæjarstjórnar, þegar málið verður tekið fyrir á bæjarstjórnarfundi.

DEILA