Félag um Sturlu Þórðarson stofnað

Ted Andersson flytur lykilfyrirlestur fyrir fullu húsi á alþjóðlegu ráðstefnunni Sturla Þórðarson 1214–2014. Mynd: Árnastofnun.

Í maí var stofnað félag til þess að halda minningu Sturlu Þórðarsonar, sagnaritara á lofti. Stjórn Sturlufélags skipa: Bergur Þorgeirsson forstöðumaður Snorrastofu, Bjarnheiður Jóhannsdóttir fráfarandi ferðamálafulltrúi Dalabyggðar og rekstraraðili Eiríksstaða, Einar Kárason rithöfundur, Einar K. Guðfinnsson fyrrum ráðherra og forseti Alþingis, Guðrún Nordal formaður Stofnunar Árna Magnússonar, Kristján Sturluson sveitarstjóri Dalabyggðar og Svavar Gestsson fyrrum ráðherra og sendiherra.

Í samþykktum Sturlufélagsins segir:

 

Tilgangur félagsins er að halda á lofti nafni Sturlu Þórðarsonar sagnaritara á Staðarhóli og að heiðra á allan hátt framlag hans til íslenskrar menningar. Félagið hefur samstarf við aðra aðila sem á einhvern hátt tengjast eða geta tengst verkum Sturlu Þórðarsonar. Tilgangi sínum hyggst félagið ná með fundum, útgáfustarfsemi, sýningum og öðrum þeim hætti sem er talinn heppilegur til að stuðla að markmiðum félagsins. Þá mun félagið stuðla að stofnun, opnun og starfrækslu minningarreits um Sturlu Þórðarson að Staðarhóli í Dalabyggð.“

 

Ákveðið var að þeir sem ganga í félagið fyrir næstu áramót verði taldir stofnfélagar. Þeir sem hafa áhuga á að verða stofnfélagar eru beðnir um að senda nafn, heimilisfang og kennitölu á tölvupóstfangið sturla1214@gmail.com.  Tölvupósturinn þarf að berast fyrir áramót.

 

DEILA