Vísindakaffi Sævangi: Menningararfur í myndum

Gömul mynd frá Hólmvík.

Rannsóknasetur HÍ á Ströndum – Þjóðfræðistofa tekur þátt í Vísindavöku Rannís með því halda Vísindakaffi fimmtudaginn 26. sept. kl. 20:00. Viðburðurinn er haldinn á Kaffi Kind á Sauðfjársetrinu í Sævangi og boðið er upp á kaffi á meðan á spjallinu stendur.

Á Vísindakaffinu kynna Jón Jónsson og Eiríkur Valdimarsson nýtt og viðamikið rannsókna- og miðlunarverkefni á vegum Rannsóknaseturs HÍ á Ströndum – Þjóðfræðistofu. Verkefnið ber yfirskriftina Menningararfur í myndum og snýst um gamlar ljósmyndir, söfnun þeirra, varðveislu og miðlun. Sagt verður frá þeirri vinnu sem framundan er, verkþáttum og samstarfsaðilum, sem eru söfn og menningarstofnanir í héraðinu og á landsvísu.

Öll sem áhuga hafa eru hjartanlega velkomin á Vísindakaffið.

DEILA