Útflutningsverðmæti fiskeldis gæti orðið um 40 ma.kr árið 2021

Arnarnes lengst til vinstri við hlið Kópanes og Hafnarnes. Mynd: Bernharður Guðmundsson.

Á vefsíðu Fjármála- og efnahagsráðuneytisins  segir í frétt í dag að útlit sé fyrir að fiskeldi tvöfaldist á næstu tveimur árum. Útflutningsverðmæti fiskeldis gæti orðið um 40 ma.kr árið 2021 eða sem nemur hátt í 3% af heildarútflutningi. Þá segir að líklegt sé að mikill vöxtur haldi áfram í einhver ár eftir 2021.

60% vöxtur í ár

Fiskeldi hefur vaxið mikið á undanförnum árum og verði vöxtur á næstu árum, einkum í laxeldi, jafnmikill og útlit er fyrir mun hann hafa teljandi áhrif í þjóðhagslegu samhengi. Það sem af er ári er vöxtur í útflutningsverðmæti milli ára um 60%. Útflutningsverðmæti fiskeldis verður líklega hátt í 20 ma.kr í ár eða sem nemur ríflega 1% af heildarútflutningi. Á þessu ári hafa samanlagðar framleiðsluheimildir í fiskeldi nær tvöfaldast og eru nú um 85 þús. tonn á ári miðað við útgefin starfsleyfi Umhverfisstofnunar. Það tekur rekstraraðila um tvö ár að komast í fulla framleiðslugetu.

Mestallt fiskeldi hér á landi er annars vegar á Vestfjörðum og hins vegar á Austfjörðum og skiptist tiltölulega jafnt milli þessara tveggja landsvæða.

Tvöföldun á næstu tveimur árum

Meðfylgjandi mynd sýnir spá um þróun í fiskeldi á næstu árum. Gangi áform eftir eru líkur á að samanlögð framleiðsla tvöfaldist til ársins 2021. Miðað við óbreytt afurðaverð þýðir þetta að útflutningsverðmæti fiskeldis gæti orðið um 40 ma.kr. árið 2021. Það nemur hátt í 3% af heildarútflutningi og slagar upp í verðmæti alls uppsjávarfisks í fyrra. Spáin er vitanlega háð óvissu um gang mála hjá einstökum framleiðendum.

Miðað við þær starfsleyfisumsóknir sem eru til skoðunar mun vöxtur fiskeldis líklega halda áfram eftir árið 2021. Það er þó takmarkað hversu mikinn fisk er hægt að framleiða í einstökum fjörðum og víða eru samanlagðar heimildir að nálgast burðarþol fjarðanna. Þrátt fyrir það er ekki útilokað að framleiðsluverðmætið geti vaxið um nokkra tugi milljarða til viðbótar á árunum eftir 2021, segir í frétt ráðuneytisins.

 

DEILA