Við bræðurnir og Gaui: Hrós dagsins fær Ólafur Steinþórsson altmuligmand frá Lambadal

Hrós dagsins fær Ólafur Steinþórsson frá Lambadal. Óli var sjómaður á ýmsum skipum frá Þingeyri, bóndi í Fremri-Hjarðardal lengi, ráðsmaður í Mjólká, svo er hann múrari og smiður, bæði á tré og járn, svo nokkuð sé nefnt. Maður hélt nú satt að segja að kallinn hefði verið á góðri leið með að drepa sig á múrverkinu í gamla daga, eins og fleiri af þeirri starfsstétt. Þeir hafa margir farið í bakinu og fleiru. En það var nú sem betur fer ekki.

Óli hefur á seinni árum verið lykilmaður í hinu mikla hugsjónastarfi Eiríks Eiríkssonar Hálandahöfðingja á Felli við endurnýjun eldri mannvirkja á Þingeyri. Verkin sýna þar merkin. Ólafur er ótrúlega lagtækur og liðlegur smiður og nefndu það bara. Honum fellur aldrei verk úr hendi frekar en mörgum öðrum í hans ættgarði. Sívinnandi frá morgni til kvölds, en kann að gera sér glaðan dag ef slíkt er á dagskrá. Svo er nú skapferlið og almennt háttalag þannig, að hann kemur öllum í gott skap bara með því að láta sjá sig og er það ekki öllum gefið. Eiginkona Ólafs er heiðurskonan Bryndís Helgadóttir og eiga þau 2 börn.

Við bræðurnir og Gaui veitum Ólafi Steinþórssyni hrós dagsins með heiðri og sóma.

DEILA