Vel heppnuð dagskrá í Dalbæ á Snæfjallaströnd í minningu Ásgeirs Guðjóns Ingvarssonar

Laugardaginn 3. ágúst var dagskrá í Dalbæ á Snæfjallaströnd til að heiðra aldarminningu Ásgeirs Guðjóns Ingvarssonar frá Lyngholti. Húsfyllir var í Dalbæ eða um 80 manns. Sönghópurinn Uppsigling með Þorvald Örn Árnason fremstan í flokki myndaði kjarnann í dagskránni þar sem farið var yfir laga- og textaskrá Ásgeirs með slíkum tilþrifum að lengi verður í minnum haft.

Æft var í hlöðunni á Lyngholti og eftir tónleikana í Dalbæ var ekki látið staðar numið og fjörið hélt áfram í hlöðunni á Lyngholti um kvöldið. Margir sem komu fram á tónleikunum voru í tónlist með Ásgeiri um 1980 en einnig kom fram fríður flokkur tónlistarfólks úr fjölskyldu- og vinahópi Ásgeirs, m.a. Arnór Ingi Ingvarsson, sonarsonur Ásgeirs og Jón Hallfreð Engilbertsson, bróðursonur hans.

Einnig flutti Engilbert Ingvarsson yngri tvö lög, annað eftir Sigvalda Snæ Kaldalóns og Heiðrún Kristín Guðvarðardóttir sópran flutti lög eftir Sigvalda Kaldalóns. Í lokin var flutt lagið Snæfjallaströnd eftir Jón Hallfreð Engilbertsson. Uppbyggingarsjóður Vestfjarða styrkti við verkefnið.

Ásgeir Guðjón Ingvarssonar (1919-1989) tónskáld, textahöfundur, tónlistar- og myndlistarmaður var fæddur á Hamri í Nauteyrarhreppi, en fluttist ungur í Snæfjallahrepp með foreldrum sínum, Salbjörgu Jóhannsdóttur og Ingvari Ásgeirssyni og þar ólst hann upp. Fjölskyldan bjó fyrst í Hólhúsinu í Bæjum, síðan í Unaðsdal og loks á Lyngholti þar sem Ásgeir lærði að lesa nótur og spila á orgel hjá Þorgerði Sveinsdóttur, systur Ásmundar myndhöggvara. Tólf ára gamall var Ásgeir farinn að spila á orgelið í Unaðsdalskirkju.
Ásgeir dvaldi um skeið á Ísafirði og tók þar þátt í tónlistarlífi, fór að spila á gítar og semja lög og gamanvísur.
Lengst af bjó Ásgeir í Kópavogi þar sem hann vann sem tækniteiknari og mælingamaður. Ásgeir tók ríkan þátt í tónlistarstarfi, m.a. með Alþýðukórnum sem Sigursveinn D. Kristinsson stofnaði, en Ásgeir stjórnaði kórnum um tíma og samdi texta við mörg lög sem kórinn flutti. Hann gerði marga texta fyrir Sigursvein, Ríó tríó, Jónatan Ólafsson og fleiri. Ásgeir hafði sérstakt dálæti á írskri þjóðlagatónlist og var heiðursfélagi í Vísnavinum ásamt Ása í Bæ og Jónasi Árnasyni. Sumt af lögum og textum Ásgeirs var gefið út en margt er enn óútgefið.
DEILA