Stofnun Félags smáframleiðenda matvæla í burðarliðnum

Mynd: feykir.is

Stofnfundur Félags smáframleiðenda matvæla verður haldinn þann 3. september nk. frá kl. 13-15 í fundarsal í húsakynnum Samtaka iðnaðarins, Borgartúni 35, 104 Reykjavík.

Í fréttatilkynningu segir að „ólík verkefni sem hafa verið unnin á vegum Matarauðs Íslands undanfarin tvö ár hafa gefið til kynna þörf á öflugra samstarfi og samtakamætti smáframleiðenda matvæla. Dæmi um slík verkefni eru hinir svokölluðu REKO hópar þar sem milliliðalaus viðskipti milli smáframleiðenda og neytenda fara fram í gegnum samfélagsmiðilinn Facebook og greining á starfsemi Beint frá býli.“

 

Oddný Anna Björnsdóttir ráðgjafi hefur unnið að ýmsum verkefnum fyrir Matarauð Íslands og fleiri. Hún segir að mikill og vaxandi fjöldi smáframleiðenda matvæla starfi í landinu. „Þeir séu að verða sífellt sýnilegri og fyrirferðameiri á markaði og um leið hafi eftirspurn eftir slíkum matvælum stóraukist. Því sé kominn tími til að þeir sameinist í einu félagi sem vinni að hagsmunamálum þeirra á ólíkum sviðum, sé opinber málsvari þeirra og stuðli að framförum í málefnum sem þá varðar.“

Fundarboð má finna á Facebook undir heitinu: Stofnfundur Félags smáframleiðenda matvæla – vinnufundur og eru áhugasamir hvattir til að haka við hvort þeir sjái sér fært að mæta. Hægt verður að tengjast fundinum í gegnum fjarfundarbúnað.

 

Fundurinn er öllum opinn, en smáframleiðendur eru hvattir til að mæta og leggja sitt lóð á vogaskálarnar við gerð greiningar á styrkleikum, veikleikum, ógnunum og tækifærum íslenskra smáframleiðenda matvæla, samþykkta félagsins, aðgerðaáætlunar og taka þátt í kosningu stjórnar. Auglýst er eftir áhugasömu öflugu fólki í stjórn

DEILA