Sinfóníuhljómsveitin, Herdís Anna og Mikolaj Ólafur á leiðinni vestur

Sinfóníuhljómsveit Íslands og sópransöngkonan Herdís Anna Jónasdóttir halda tónleika á Ísafirði 5. september næstkomandi. Á tónleikunum verða flutt sígild verk eftir Grieg, Mozart, Chopin, Dvorak, Sibelius, Pál Ísólfsson, Sigvalda Kaldalóns og fleiri meistara. Einleikarar með sveitinni verða Ísfirðingurinn Mikolaj Ólafur Frach píanóleikari og Stefán Jón Bernharðsson hornleikari. Einsöngvari verður Ísfirðingurinn Herdís Anna Jónasdóttir og Beata Joó bæjarlistamaður ársins 2018 er kórstjórnandi. Hljómsveitarstjóri verður Daníel Bjarnason. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis.

Efnisskrá tónleikanna verður þessi:

Edvard Grieg Pétur Gautur, valdir þættir

W.A. Mozart Hornkonsert nr. 3

Frédéric Chopin úr píanókonsert nr. 2

Páll Ísólfsson Úr útsæ rísa Íslands fjöll

Sigfús Einarsson Draumalandið

Sigvaldi Kaldalóns Ave María

Antonín Dvořák Söngur mánans úr Rusalka

Giacomo Puccini Quando men vo úr La bohème

Jean Sibelius Sinfónía nr. 5

DEILA