Reykhólar: Tónleikar á Báta og hlunnindasýningunni 26. ágúst

Á báta- og hlunnindasýningunni á Reykhólum á mánudaginn verður órafmögnuð og þjóðlagakennd kvöldvaka með tónlist frá Bandaríkjunum og Austurríki.

Fram kemur Ian Fisher söngvaskáld frá St. Genevieve, Missouri. Hann hefur samið meira en 1.500 lög og hefur Rolling Stone tímaritið sagt tónlist hans vera “sjónarhorn heimshornaferðalangsins á amerískt þjóðlagarokk.”

Ennfremur Fräulein Hona hljómsveit skipuð fjórum austurrískum konum, sem leika á fjölmörg hljóðfæri og syngja allar af valinkunnri snilld og fegurð. Tónlist þeirra hefur verið lýst sem fíngerðri og einlægri með hljómfögrum röddunum.

Þessir listamenn leggja í sína fyrstu tónleikaferð um Ísland í ágúst, með kassagítara, fiðlu, melódíku og nokkur aukahljóðfæri sem gætu komið á óvart.

Bjór og hressing verður í boði á tónleikunum. Aðgangur er ókeypis, en áhorfendur eru hvattir til að taka með sér reiðufé til vonar og vara ef þeir yrðu gripnir óvæntri löngun til að styðja langt að komna farandtónlistarmenn í ferðakostnaði sínum.

Húsið opnað kl. 19.30; tónleikar hefjast kl. 20.

Frá þessu er greint á Reykhólavefnum.

DEILA