Forstjóri HS Orku semur um starfslok : ekki áhrif á Hvalárvirkjun

Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku hefur samið um starfslok. Mun hann gegna störfum þar til að nýr forstjóri hefur verið ráðinn.

HS Orka er stærsti eigandi að Vesturverki ehf sem áformar að reisa Hvarárvirkjun.

Ásgeir sagði í samtali við Bæjarins besta að breytingarnar væru afleiðing af breyttu eignarhaldi í HS Orku þar sem lífeyrissjóðirnar hafa aukið hlut sinn úr þriðjungi í helming. Eðlilegt væri að því fylgdu breytingar á yfirstjórn.

Aðspurður kvaðst hann ekki telja að þessar breytingar hefðu áhrif á áform um  Hvalárvirkjun. Samstaða hefur verið meðal eigenda HS Orku um málið.

Í fréttatilkynningu frá HS Orku segir Ásgeir:

„Ég mun kveðja samstarfsfólk mitt með stolti. Að baki eru 6 ánægjuleg ár þar sem ég hef leitt þetta félag í gegnum verulegar áskoranir og mikið vaxtaskeið. Nýr forstjóri mun taka við góðu búi, framundan eru mikilvæg og umfangsmikil verkefni svo sem að ljúka framkvæmdum og gangsetja Brúarvirkjun, framkvæmdir við stækkun Reykjanesvirkjunar um 30 MW og endurnýjun og stækkun í orkuveri félagsins í Svartsengi. Um leið og ég þakka samstarfsmönnum frábært samstarf óska ég félaginu allrar velgengni í framtíðinni.“

Bjarni Þórður Bjarnason, stjórnarformaður HS Orku segir um Ásgeir að hann hafi „um langa hríð verið lykilmaður í íslenska orkuiðnaðinum og leitt fyrirtækið farsællega í gegnum mikið breytingaskeið. Eftir stendur myndarlegt fyrirtæki og góður árangur þess hefur endurspeglast í ríkum áhuga á félaginu jafnt frá lánveitendum og fjárfestum. Stjórn HS Orku þakkar Ásgeiri sérstaklega fyrir störf hans í þágu félagsins.“

DEILA