Aldrei aftur Hirósíma og Nagasakí – Kertafleyting á Ísafirði

Frá kertafelytingu á Ísafirði. Mynd: Bryndís Friðgeirsdóttir.

Þann 9. ágúst eru 74 ár síðan kjarnorkusprengjum var varpað á borgirnar Hírósíma og Nagasakí í Japan. Frá árinu 1985 hafa Íslendingar minnst fórnarlamba þessara skelfilegu árása með því að fleyta kertum og árétta kröfuna um heim án kjarnorkuvopna.

Yfirlýsingin er: Aldrei aftur Hirósíma og Nagasakí. Kertafleyting verður í fjörunni í Neðsta á Ísafirði föstudaginn 9. ágúst kl. 22.30. Þetta er í þriðja sinn sem fleytingin verður á Ísafirði.

Kerti verða gefins á staðnum.

DEILA