Bolungavík: Leikskólinn fær gjöf

Bryndís Guðmundsdóttir, talmeinafræðingur, færir leikskólum þjálfunarefni sem bætir framburð barna, eykur orðaforða og undirbýr læsi.

Bryndís hefur starfað í rúmlega 30 ár sem talmeinafræðingur og hefur m.a. gefið út námsefni undir heitinu, Lærum og leikum með hljóðin, sem ætlað er öllum barnafjölskyldum og skólum. Námsefnið byggir á fagþekkingu talmeinafræðinnar, rannsóknum og reynslu Bryndísar af því að vinna með börnum, foreldrum og fagfólki skóla. Efnið hefur hlotið ýmsar viðurkenningar.

Bryndís segir að það sé mikilvægt að leggja grunn að læsi frá unga aldri með því að leggja áherslu á framburðarkennslu hljóða, hljóðvitund og bókstafi. Það þjálfar hljóoðkerfisþætti, eykur orðaforða og hugtakaskilning.

 

Allir leikskólar á landinu, fá nú í sumar, heildstætt efni úr Lærum og leikum með hljóðin að gjöf til að nýta í starfi sínu með leikskólabörnum. Aukaefni eins og púsl, límmiðar og vinnusvuntur, sem styðja við hljóðanámið með fallegum stafamyndum, fylgir með í skólapökkunum. Einnig munu fimm íslensk smáforrit fyrir iPad vera gefin samhliða til skólanna og foreldra íslenskra barna. Bryndís mun svo fylgja efninu eftir með vefnámskeiðum.

Samstarfsaðilar Bryndísar sem gera þessa gjöf mögulega eru Marel, Lýsi, Ikea og hjónin Björgólfur Thor og Kristín Ólafsdóttir, auk aðkomu Raddlistar sem er fyrirtæki Bryndísar í talmeinaþjónustu.

Frá þessu greint á heimasíðu Bolungavíkurkaupstaðar.

DEILA